það sem á dagana hefur drifið er
ýmislegt..
prófin byrja eftir ca viku, sem er ekkert nema stressandi,
sérstaklega þar sem ég er nokkuð illa sett í stærðfræði og eðlis-
og efnafræði.. sá samt smá vonarglætu þegar ég fékk 6 í
stærðfræðiprófi í morgun..
ég fékk allavega eins og margir þann
óhæfileika að vera léleg í þessum fögum, er e-n veginn bara dæmd
til að fá undir 5 í eðlis- og efnafræði.
ég skellti mér með Birki á markaðinn í Perlunni,
hann æstur í að finna "best of" með á móti sól, en sá diskur var
búin af e-m ástæðum sem ég skil ekki, enda með eindæmum asnaleg og
léleg hljómsveit tala nú ekki um söngvarann, strákurinn keypti sér
bara 2 diska með landi og sonum. ég verð að segja að ég skil
ekki þetta lagaval hjá honum... jújú ég elskaði land og syni hérna
á árum áður, en óx upp úr því, annað en hann..


ég allavega fór allavega sátt út úr perlunni með
lay low og Togga, svo splæsti ég á mig einni DVD, Tommy boy, tel
það vera aðeins betri kost heldur en á móti sól og land og
synir..
ég er búin að vera voða mikið dugleg í World
Class núna uppá síðkastið, skellti mér í salsa tíma áðan, guð minn
almáttugur hvað þetta var leiðinlegt, reyndar var ég að drepast úr
harðsperrum eftir yogað í gær.. þegar ég fór seinast í salsa þá var
annar kennari og ótrúlega gaman.. en var illa bitur eftir tímann og
blótaði ofvirku stelpunni í gríð og erg sem var í tímanum áðan, fór
í mínar fínustu taugar


sumarið er á næsta leyti og fyrir mína parta get
ég varla beðið, hlakka svoo til að vera búin með prófin, byrja að
vinna og komast í sumarfílinginn.. Hildur verður ein heim heillengi
og þar verða fullt af hittingum..
jeij! svo verð ég ein heima í
viku, bíð ykkur e-ð þá..
fæ fiðring í magan við tilhugsunina um
að sumarið sé að koma.. mmm lov it..
ég heyri í ykkur, veriði dugleg að læra
~Hófí..